FÍF — Félag íslenskra flugumferðarstjóra
04.10.2005
Til hamingju með daginn!

Þann 4. október 1955 var Félag íslenskra flugumferðarstjóra stofnað – við fögnum því 50 ára afmæli í dag! 

Það voru ungir og kraftmiklir menn sem stofnuðu félagið, þeir töldu að  baráttumálum þeirra væri ekki nógu vel sinnt í því stéttarfélagi sem þeir þá tilheyrðu(FFR) og stofnuðu því eigin samtök sem höfðu það að markmiði að gæta hagsmuna flugumferðarstjóra. Valdimar Ólafsson var fyrsti formaður félagsins, rétt er að þakka honum og þeim sem með honum störfuðu fyrir dugnaðinn,  án þeirra værum við ekki þar sem við erum í dag.

Á laugardaginn nk., 8. október, verður afmælisveislan haldin á Hótel Nordica.  Þar má búast við gleði eins og alltaf þegar flugumferðarstjórar safnast saman!  
Sjáumst á laugardaginn.
Stjórnin

FÍF — Félag íslenskra flugumferðarstjóra
FÍF
(+354) 861 0050
iceatca@iceatca.is
Stórhöfði 31, 110 Reykjavík